Sjónvarpsköku twist

Þessi dásemd er ein af mínum uppáhalds, þó svo að margir skilji ekki ávexti og bakstur þá er það eitt af mínum uppáhalds að blanda þessu tvennu saman.

Mæli með þessari einföld þægileg og fljótleg.

sjónvarpskaka með smá twist

  •  2 bollar hveiti
  •  2 bollar sykur
  •  2 egg
  • 1 tsk vanillu sykur eða dropa
  •  1 tsk matarsodi
  •  salt á hnífsoddi
  •  1 dós ananas helst maukaður en má kaupa öðruvísi og mauka þá í matvinnsluvél nota safann líka.

Hræra öllu saman eftir röð, þar til vel blandað sett í vel smurt mót ég notaði 23*33 cm mót svipað og skúffukökumót aðeins minna samt. Stórt eldfast mót dugar líka ef það er svipað að stærð. Bakist svo á um 170 undir og yfir hita í um 40 min þar til prjónn kemur hreinn úr miðju. Muna að ofnar eru mismunandi

Á meðan kakan bakast er gott að blanda karamelluna

  • 1 dl rjómi
  •  100gr smjör
  •  100gr púðursykur
  •  salt á hnífsoddi

Allt sett í pott og hitað saman allt í lagi að láta búbbla smá en ekki mikið. Kælt svo aðeins og 1 til 1 og 1/2 bolla af kokosmjöli bætt úti.

Leyfið kökunni að kólna stingið nokkur göt á hana og hellið karamellu/kokos blöndunni yfir og njótið

54207573_10161719473460533_6206797706355015680_o

Leave a comment