Súkkulaði botnar
2 Bollar hveiti
2 Bollar sykur
3/4 Bolli bökunarkakó
2 tsk Lyftiduft
1 og 1/2 tsk Matarsódi
1 tsk Salt
2 tsk Vanillu dropar
2 Egg
1/2 bolli Olía ég nota olive oil
1 Bolli sjóðandi heitt vatn
Blandið þurrefnum saman og síðan eggjum mjólk og olíu. Hrærið vel saman og bætið síðan heita vatninu rólega við. Þegar heita vatnið
er komið útí hrærið þá á góðum hraða í smástund setjið í tvö form ég notaði 20cm og bakið á 160gr undir og yfirhita í um 30-40min, eða þar
til prjónn kemur hreinn úr miðju.
Karamella
200 gr Smjör
200 gr Púðursykur
2 dl Rjómi
1tsk vanillu dropar
Allt soðið saman við vægan hita og hrært vel á meðan þegar það byrjar að sjóða takið af hita og hrærið aðeins áfram leyfið karamelluni
svo að kólna alveg áður en hún er notuð. Verður þykk og góð. Straið smá sjávarsalti yfir þegar hún er orðin köld.
Það er líka hægt að kaupa rosalega góðar karamellur.
Með smjörkrem þá nota ég flórsykur smá vanilludropa og smjör þangað til ég næ þykktini og áferðinni sem ég vil og set þá smá karamellu útí það ég er annars rosalega mikið að setja dass af þessu og hinu þegar ég geri krem.
og svo set ég karamellu á milli botnana líka. Gott að gera hring um neðri botninn með smjörkremi svo karamellan leki ekki út.