Þessi kemur svo sannarlega á óvart, létt og ljúffeng en samt eithvað svo rosalega jólalegt við hana og ég mæli eindregið með henni í helgarkaffið. Kremið er líka alveg hrikalega gott. Það má sleppa eplamaukinu og setja þá í staðinn bara 1 bolla af olíu.
Uppskrift
- 3 egg
- 1/2 bolli olía
- 1/2 bolli eplamauk
- 3/4 bolli sykur
- 3/4 bolli púðursykur
- 2 1/2 bolli hveiti
- 2 tsk vanilludropar
- 1/4 tsk lyftiduft
- 2 tsk matarsodi
- 1 1/2 tsk kanil
- 1 tsk salt
- 1/2 tsk
- 2 bollar rifinn kúrbítur ( rifin eins og hver og einn kýs, ég vil hafa hann gróft rifinn)

Kremið
- 220 gr rjómaostur
- 1/4 bolli smjör
- 3 bollar flórsykur
- 1 tsk vanilla
Aðferð
Byrjið á að hræra sykrana og eggin saman þar til blandan er létt í sér. Bætið næst við olíu og eplamaukinu, svo hveitinu og restini af hráefnunum. Bætið kúrbítnum við í lokin og hrærið hann í með sleif. Setjið í smurt form ég nota 20*20 en það má alveg vera aðeins stærra hún verður þá aðeins þynnri bara. Setjið hana í forhitaðan ofn 170-180 gráður og bakið hana í 40-50 min eða þar til prjón stungið í miðju kemur hreinn út.
A meðan kakan kólnar er kjörið að hræra saman kremið setjið öll innihaldsefni í skál og þeytið vel saman. Smyrkið á kökuna þegar hún hefur kólnað gott að strá smá kanilsykur yfir hana þegar kremið er komið á .
