
Eins og svo oft áður fann eg þessa dásemd á pinterest og þið verðið ekki svikin ef þið prófið þessa.
Hafraklattar með eplum
- 1 bolli hveiti
- 1 tsk kanill
- 1/4 tsk múskat
- 1/2 tsk matarsódi
- 1/4 tsk salt
- 1/2 bolli smjör
- 1/2 bolli púðursykur
- 1/4 bolli sykur
- 1 egg
- 1tsk vanillu extract eða dropar
- 1 og 1/2 bolli hafrar
- 1 frekar stórt epli
Byrjið á því að flysja eplið og skera það smátt. Takið því næst öll þurrefni nema hafrana og hrærið saman í stóra skál. Þeytið saman sykur púðursykur og smjör í annari skál, bætið því næst eggi og vanillu extract við bætið þurrefnum við hægt og rólega og að lokum höfrum. og eplabitunum. Leyfið deiginu að standa í ísskáp um 30 min aður en þið bakið kökurnar. Setjið þær svo á plötu með matskeið þá ættu þær að vera hæfilega stórar. Bakist á 180 í um 12-15 min fylgist með hvernig þær verða gullbrúnar.
Get allavega sagt ykkur það að þessar hurfu ofan í heimilismenn hér börn og fullorðna njótið vel