fyrsti pósturinn

Ég er hægt og rólega að komast af stað í þessu öllu og eyddi kvöldinu í að þýða nokkrar uppskriftir, það er stundum það skemmtilegasta en stundum það leiðinlegasta, hef líka rekið mig á að sumar bandarískar uppskriftir eru alveg einstaklega flóknar.

En mér langaði að deila með ykkur þessu ótrúlega góða og einfalda kanilbrauði, mjög fljótgert og hentugt ef manni
langar í gotterí með stuttum fyrirvara.

Kanilbrauð

  • 2 tsk vanillu dropar
  • 1 bolli mjólk
  • 1 egg
  • 1/2 bolli sykur
  • 1/2 tsk salt
  • 1 msk lyftiduft
  • 2 bollar hveiti
  • 1/3 bolli grísk jógúrt
  • Kanilblanda
  • 1/3 bolli sykur
  • 2 tsk kanill
  • 2 msk vatn
  • Glassúr ofan á
  • 1/2 bolli flórsykur
  • 1-2 msk mjólk

Hrærið þurrefnum saman í eina skál og eggi, jógúrt, vanilludropum og mjólk í aðra skál. Hellið blautu blöndunni varlega við þurrefnin og hrærið á meðan. Setjið blönduna í brauðform/jólakökuform,

blandið kanilblönduna og hellið ofan á deigið notið prjón eða tannstöngul til að draga kanilblönduna í gegnum deigið dreifir úr henni og gerir skemmtilegt mynstur.

bakist á 180-200g í um 40-50 mínutur eða þar til prjónn kemur hreinn úr miðjunni leyfið brauðinu að kólna aðeins áður en þið hellið glassúrnum yfir.

 

20161004_204225

Leave a comment